Hleð inn...

Útgáfa og vefverslun

Velkomin á útgáfusíðu og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Á þessari síðu er að finna allar þær bækur, blöð, skýrslur og sérrit á sviði rannsókna, þróunar og stjórnunar sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands gefur út, oft í samvinnu við aðra lykilaðila í íslensku nýsköpunar- og rannsóknarumhverfi. Úrvalið er mikið og endurspeglar þá fjölbreyttu þjónustu sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands veitir. Reglulega eru gefin út RB blöð sem innihalda tæknilegar upplýsingar sem nýttar hafa verið til viðmiðunar um viðhald og gerð mannvirkja. Að auki inniheldur vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar meðal annars gjaldfrjáls fræðslumyndbönd, stafræn örnámskeið, rit og skýrslur m.a. um samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegum samanburði, stjórnun og rekstur fyrirtækja og ferðaþjónustu. Hér er jafnframt að finna upptökur frá starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar, frá frumkvöðlasetrum og ýmsum ráðstefnum og kynningarfundum svo fátt eitt sé nefnt.

Hluti þeirra vara sem í boði eru fást án endurgjalds, en aðrar eru seldar gegn hóflegu gjaldi. Greiðslumiðlun fer í gegnum Valitor en vefverslunin er tengd sérstakri síðu sem býður upp á örugga meðhöndlun greiðsluupplýsinga. Dagleg umsýsla og rekstur vefverslunar er í höndum starfsfólks Nýsköpunarmiðstöðvar.

Vinsælast

Stofnun fyrirtækja - formreglur, réttindi og skyldur

VNR: B006

Ekki til á lager
Frítt niðurhal

Allt sem þú þarft að vita til að stofna þitt eigið fyrirtæki


Gerð viðskiptaáætlana

VNR: R001

Ekki til á lager
Frítt niðurhal

Gagnlegt rit sem gott er að
hafa til hliðsjónar við gerð viðskiptaáætlana. Í ritinu er
lesandinn aðstoðaður við að skilgreina hugmyndir sínar og gera
áætlanir með það að markmiði að hugmyndin geti orðið að
veruleika.


Áhrif vinnslu steinsteypu á eiginleika hennar

VNR: Rb072

1070 kr.

Með áhrifum vinnslu steinsteypu á eiginleika hennar er átt við þá breytingu sem á sér stað í steinsteypu frá hrærslu í steypustöð þar til búið er að leggja hana niður í mót á byggingarstað.

  • Rafrænt 
  • Pappír 

Gæðahúsið

VNR: R003

400 kr.
Til á lager

Gæðahúsið (Quality Function Deployment) er aðferðafræði sem hjálpar fyrirtækjum að greina grunnþarfir viðskiptavina sinna og bendir þeim á leiðir til að ná forskoti á samkeppnisaðila.


Bárujárn: Efniseiginleikar - notkunarsvið

VNR: Rb097

749 kr.

Í þessu blaði er lýst gerð og eiginleikum bárujárns til þakklæðningar og notkun þess.

  • Rafrænt 
  • Pappír 
Karfa er tóm   Karfa er tóm